Gestabók
Skrifa í Gestabók
Gestir:
er ekkert að frétta af Geir
það eru engar upplýsingar um Geir á þessar síðu nema síðan 24.8.2007
einn áhugasamur frændi (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 3. mars 2008
trú von og kærleikur
Geir er ótrúlega gefandi persóna. í öllum bréfum sem hann hefur sent mér hefur hann gefið mér ótrúlega mikið með því að vera hann sjálfur. Hann er ótrúlega yfivegaður og jákvæður þrátt fyrir þær ömurlegu aðstæður sem hann hefur þurft að þola. Undanfarna viku hefur hann ekki mátt fara úr klefanum sínum. Þetta er gert tvisvar á ári (segir hann í bréfi til mín) til þess að hægt sé að leita á öllum föngunum. Það er samt engin reiði sem hægt er að skinja í bréfunum frá honum bara gleði yfir því að vera ekki lengur svona einn í þessari baráttu sinni. Ég vil hvetja alla til að hugsa fallega til Geirs hann á það svo sannarlega skilið. Hann á sér sína trú og þarf á kærleik að halda frá samfélaginu og okkur hérna úti sem finnst svo sjálfsagt að geta gengið um frjáls. Einnig má hann og fjölskylda hans ekki missa vonina um að hann fái að koma hingað upp til Íslands. Íslendingurinn Geir á að fá að afplála hér á Íslandi og það þarf að finna leiðir til að sannfæra Bandarísk stjórnvöld um það. Megi góður Guð styrkja hann of fjölskyldu hanns og vini til að takast á við þau verkefni sem bíða. ps. Geir er ótrúlega ánægður með að fá að fara í skóla (en það er bréfaskóli) sem hann fær vonandi bráðum skólagögnin úr. Ég óska Geir til hamingju með þann áfánga. Bestu kveður og Guð blessi þig Geir minn Fanný
Fanný Jónmundsdóttir (Óskráður, IP-tala skráð), mán. 2. júlí 2007